• 00:02:16Una Þorleifsdóttir um Prinsessuleikana
  • 00:22:40Roni Horn nýr ríkisborgari
  • 00:32:51Hekla Dögg um Kerfi í Berg Contemporary

Víðsjá

Prinsessuleikarnir, Kerfi í Berg contemporary, Roni Horn

Í Berg Contemporary við Klapparstíg var opnuð um liðna helgi sýningin Kerfi þar sem verk eftir Heklu Dögg Jónsdóttur myndlistarkonu eru til sýnis. Verkin á sýningunni eru þrenns konar: þarna er vídeóverk þar sem þrír litir blandast saman á vatnsyfirborði, í öðru verki rúlla hvítir og svartir textar yfir vegginn á plastrúllum, og svo eru þarna stór pappírs verk, sem frá gólfi og upp í loft. Meira um það þegar við göngum um sýninguna með Heklu Dögg í þætti dagsins.

Og svo ætlum við velta fyrir okkur hugmyndinni um prinsessuna. Goðsögnin um hina hreinu og duglegu prinsessu, prúðu og iðnu stúlkuna, sem Grimmsbræður festu á blað, og sem Disney verkmsiðjan festi svo enn betur í sessi í samtíma okkar, lifir enn góðu lífi, en afhverju? Austurríska nóbelskáldið Elfriede Jelinek tekst á við þessar spurningar í Prinsessuleikunum, verki sem Borgarleikhúsið frumsýnir um næstu helgi í leikstjórn Unu Þorleifsdóttur. Una verður gestur okkar í dag.

Á fimmtudaginn síðasta var samþykkt á Alþingi veita 21 ein­stak­lingi rík­is­borg­ara­rétt. Athygli vakti meðal þeirra er banda­ríska lista­kon­an Roni Horn sem sannarlega setja í flokk svokallaðra Íslands­vina eft­ir ára­löng tengsl henn­ar við land og þjóð. Af þessu tilefni ætlum við hverfa aftur til ársins 2007,

og rifja upp viðtal við listakonuna, sem ræddi þá meðal annars um áhrif Íslands á list hennar, efnahagsmálin sem þá voru á blússandi siglingu og náttúruvernd svo eitthvað nefnt.

Frumflutt

13. mars 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,