Víðsjá

Kurtág 100 ára, Cantores Islandiae og Carmen/rýni

Þátturinn er undirlagður af tónlist, þó úr mjög ólíkum áttum sé. Trausti Ólafsson fjallar um uppsetningu Kammeróperunnar á óperu Bizet, Carmen, sem frumsýnd var í Tjarnarbíói um liðna helgi. Við kynnum okkur Gregorssöng, eða sléttsöng, sem sönghópurinn Cantores Islandiae hefur sérhæft sig í og býður áhugasömum njóta á tónleikum í Breiðholtskirkju á laugardag. En við byrjum á því hringja til Budapest, þar sem Víkingur Heiðar Ólafsson og eiginkona hans, Halla Oddný Magnúsdóttir, undirbúa sig fyrir tónleika til heiðurs

einu merkasta tónskáldi samtímans, György Kurtág, sem fagnar 100 ára afmæli í dag. Kurtág hefur tileinkað Víkingi útsetningar sínar, og Víkingur tileinkaði Kurtág heila plötu, From afar, sem kom út árið 2023, auk þess sem hann frumflytur í kvöld eigin útsetningu á Air eftir Bach, til heiðurs Kurtág. Við hefjum þáttinn á því heyra rétt aðeins hljóðið í Víkingi og nánar af þessu fallega vináttusambandi.

Birt

19. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,