Víðsjá

Svipmynd: Jón Kristinsson, arkitekt og uppfinningamaður

Arkitektúr er ekki bara teikna hús, segir Jón Kristinsson arkitekt, heldur svo margt annað. Arkitektúr er vita hvar sólin kemur upp, hvernig þú athafnar þig við eldavélina, hvernig halda megi húsi hreinu og þurru, hvernig spara megi orku og skilja eitthvað eftir fyrir komandi kynslóðir. Því þú teiknar aldrei hús fyrir sjálfan þig, heldur alltaf fyrir komandi kynslóðir. Í verkum Jóns er formið ekki upphafið, heldur alltaf afleiðing af sjálfbærri hugsun.

Jón er fæddur á Stýrimannastíg í Reykjavík árið 1936. Eftir stúdentspróf fluttist hann til Hollands þar sem hann nam arkitektúr við Tækniháskólann í Delft. Í Hollandi er Jón landsþekktur maður og hans þekktasta hús, Villa Flora frá 2012, er kallað vistvænasta hús Hollands og þó víðar væri leitað. Jón hefur verið kallaður faðir sjálfbærs arkitektúrs enda hefur hann alla tíð hannað á framúrstefnulegan hátt, með umhverfisvitund og orkusparnað leiðarljósi.

Umsjón: Halla Harðardóttir

Frumflutt

27. mars 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,