Víðsjá

Yrsa Roca Fannberg / Svipmynd

Yrsa Roca Fannberg er gestur Víðsjár í dag en hún er tilnefnd til Edduverðlauna sem leikstjóri ársins. Yrsa er fædd í Reykjavík árið 1973 en hefur búið stóran hluta ævi sinnar á Spáni og í Svíþjóð. Hún ólst upp við ferðalög og ævintýri á jafn ólíkum eyjum og Formentera og Flatey, svo forvitni og áhugi á eðli manneskjunnar varð snemma hluti af lífinu. Hún sökk inn heim kvikmyndanna þegar hún var við nám í myndlist í London en eftir hafa séð verk armenska leikstjórans Harutyun Khachatryan á kvikmyndahátið í Edinborg, þá var ekki aftur snúið. Við tók nám í heimildamyndagerð í Barcelona þar sem hún hóf vinnu við sína fyrstu mynd, Salóme. Myndin átti vera portrett af móður hennar, veflistakonunni Salóme E. Fannberg, en varð á endanum mynd um samband þeirra mæðgna og um eðli heimildamynda. Árið 2019 kom Síðasta haustið, sem fjallar um síðasta haust ábúenda á afskekktum sauðfjárbæ á Ströndum og í fyrra frumsýndi Yrsa sína þriðju mynd, Jörðin undir fótum okkar. Hún gerist á dvalarheimilinu Grund og fjallar um síðasta æviskeið lífsins. Yrsa hefur starfað á Grund undanfarin 13 ár meðfram því búa til heimildamyndir og kenna skapandi heimildamyndagerð við Háskóla Íslands.

Birt

20. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,