Víðsjá

Víkingur og Goldberg, Deleríum Búbónis, Jon Fosse

Goldberg tilbrigðin í flutningi Víkings Heiðars Ólafssonar koma út hjá Deutsche Grammaphone á morgun. Víkingur er þegar byrjaður kynna plötuna með tónleikum, tónleikar hans í Royal Festival Hall í London í síðustu viku fengu 5 stjörnur í Guardian og í gær birtist fyrsti dómurinn um plötuna í The Times, þar sem Víkingur fær einnig 5 stjörnur. Við kíkjum í heimsókn til Víkings í þætti dagsins.

Einnig rýnir Nína Hjálmarsdóttir í uppsetningu Borgarleikhússins á íslenska gamanverkinu Deleríum Búbonis en við hefjum þáttinn á fréttum dagsins. Í morgun var tilkynnt hinn norski Jon Fosse hlýtur nóbelinn í bókmenntum í ár. Við ræðum við Aðalstein Ásberg Sigurðsson hjá Dimmu um höfundinn.

Frumflutt

5. okt. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,