Víðsjá

Svipmynd af sellóleikara / Gunnar Kvaran

Gunnar Kvaran sellóleikari var átta ára gamall þegar foreldrar hans sendu hann til náms í þá nýstofnaðan Barnamúsíkskóla Reykjavíkur. Þar lærði hann undir handleiðslu Doktor Heinz Edelstein sem ákvað sellóið yrði hans hljóðfæri. Eftir brottfararpróf frá Tónlistarskólanum í Reykjavík hélt Gunnar út til náms, fyrst til Kaupmannahafnar, þar sem hann hóf líka kenna við Konunglega tónlistarháskólann, og svo til Basel og Parísar. Eftir 17 ár erlendis flutti Gunnar aftur heim og hefur síðan verið einn af okkar ástsælustu einleikurum auk þess hafa jöfnum höndum kennt við Tónlistarskólann í Reykjavík og Listaháskólann.

Gunnar hefur haldið einleikstónleika víða um heim auk þess leika einleik með hinum ýmsu Sinfóníuhljómsveitum. Hann hefur einnig átt í farsælu samstarfi við eiginkonu sína, Guðnýju Guðmundsdóttur fiðluleikara í Tríói Reykjavíkur. Honum hafa fallið ýmis verðlaun í skaut, verið bæjarlistamaður Seltjarnarness og hann er líka handhafi fálkaorðunnar. Gunnar sinnir ekki aðeins tónlistinni af innri köllun, heldur hefur hann eytt drjúgum tíma í miðla henni til þeirra sem annars fengju hennar ekki notið. Því hann trúir því einlæglega tónlistin mannbætandi afl sem næri og jafnvel lækni sálina. Meira um það í samtali okkar við Gunnar, sem setur hér fyrsta verkið á fóninn.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson

Frumflutt

24. jan. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,