• 00:01:49Fullorðið fólk
  • 00:21:40Freyja Þórsdóttir pistill
  • 00:32:40Útvarp verður tónverk

Víðsjá

útvarp verður tónverk, Fullorðið fólk og verðmæti andlegrar næringar

Sameiginleg ástríða fyrir útvarpi er kveikjan nýju tónverki kammerhópsins Ensamble Adapter, sem frumflutt verður í Hafnarborg á sunnudag. Hópurinn, sem stofnaður var stofnaður í Berlín 2004, skapar frumsamda nútímatónlist og einblínir fyrst og fremst á samstarf og samsköpun með fjölbreyttum hópi listamanna sem koma víðsvegar að. Allt frá stofnun hópsins hefur hann frumflutt hundruði verka og komið fram á fjölda hátíða og tónleika um Evrópu. Í ár er Ensamble Adapter staðarlistahópur tónleikaraðarinnar Hljóðana í Hafnarborg. Gunnhildur Einarsdóttir hörpuleikari og einn stofnandi hópsins verður gestur okkar í dag og segir okkur frá nýja verkinu, Yunge Eylands Varpcast Netwerkið, en það er einskonar lifandi útvarpsleikhús þar sem umfjöllunarefnið er útvarp og þau áhrif sem útvarpsmiðillinn hefur haft á samfélög smærri þjóða í gegnum tíðina.

Við fáum heimspekilega hugleiðingu frá Freyju Þórsdóttur. Í pistli dagsins fjallar Freyja um andlega næringu, það er segja, áhrif þeirra verðmæta sem við sköpum fyrir hvort annað í listrænu og menningarlegu samhengi.

Nóvellan Fullorðið fók, Voksne mennesker, eftir Marie Aubert kom út í Noregi árið 2019 og hlaut Ungdommens kritikerpris 2020. Bókin kom nýlega út í íslenskri þýðingu Kari Óskar Grétudóttur í bókaflokknum Sólinni frá Benedikt bókaútgáfu. Fullorðið fólk segir frá Ídu, arkítekt sem er rétt liðlega fertug, einstæð og barnslaus en þráir eignast fjölskyldu. Ida er á leið í sumarparadís æsku sinnar, þar sem til stendur fagna 65 ára afmæli móður hennar. Í súmarhúsinu bíður litla systir hennar, Marta, ásamt kærasta sínum og bónusbarni. Þetta er bók um útslitin fjölskyldubönd, eigingirni og afbrýgðissemi. Og í þessari stuttu nóvellu sem Kari ósk þýðandi segir minna margt á eiginleika kammerleikhússins, er heilmikill undirtexti og þemu sem tala sterkt til samtímans. Víðsjá hringdi í Kari Ósk sem búsett er í Noregi.

Frumflutt

4. maí 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,