• 00:02:07Alþjóðlegu Booker verðlaunin
  • 00:17:21Ungi einleikarar
  • 00:32:08Arthur Lee og Love

Víðsjá

Arthur Lee og Love, Ungi einleikarar og alþjóðlegu Booker verðlaunin

Búlgarski rithöfundurinn og ljóðskáldið Georgi Gospodinov hlaut í vikunni alþjóðlegu Booker verðlaunin fyrir sína fjórðu skáldsögu, Time Shelter í þýðingu Angela Rodel. Þetta er í fyrsta sinn sem bók skrifuð á búlgörsku hlýtur þessa virtu viðurkenningu og annað árið í röð sem verðlaunin fara til bókar sem skrifuð er á tungumáli sem ekki hefur hlotið Bookerinn áður.

Á hverju ári fer fram keppni ungra einleikara sem Sinfóníuhljómsveit Íslands stendur fyrir í samvinnu við Listaháskóla Íslands. Keppnin er opin nemendum á háskólastigi, óháð því hvaða skóla þeir sækja, og þeir hlutskörpustu leika einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands á tónleikum í Eldborg. Stjórnandi þessu sinni er Nathanae?l Iselin staðarhljómsveitarstjóri og einleikarar og einsöngvarar sem koma fram eru þau Ólafur Freyr Birkisson, söngvari, Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir, söngkona, Þórhildur Magnúsdóttir, víóluleikari, Þórgunnur Anna Örnólfsdóttir söngkona.

Teitur Magnússon fer með okkur í ferðalag um tónlistarferil Arthurs Lee forsprakka hljómsveitarinnar Love, sérstakur karakter í tónlistarsögunni sem hafði gífurleg áhrif. Jimi Hendrix apaði fatastílinn eftir honum og Jim Morrison og The Doors vildu vera eins og Love. Arthur var líka stjórnsamur og á tímum erfiður - glímdi við geðsveiflur og fíkn sem ollu því hann var dæmdur í fangelsi. ?Áhrifamikill sjarmör ? glataður snillingur,? segir Teitur og við heyrum allt um það í lok þáttar.

Frumflutt

25. maí 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,