Víðsjá

Surstey og Esseyja, Pirate songs of the lower Islands

Í síðustu viku, á 60 ára afmæli Surstseyjar, var útgáfu bókarinnar Esseyju, eftir myndlistarkonuna Þorgerði Ólafsdóttur, fagnað í Norræna húsinu. Bókin tekur saman listrannsókn, myndlistarverk og önnur verkefni sem Þorgerður hefur unnið í tengslum við eyjuna, með hléum síðastliðin áratug. Auk þess skrifa fimm fræðikonur í bókina um fornleifar, jarðfræði, fagurfræði og umhverfisheimspeki. Við ræðum við eina þeirra, Þóru Pétursdóttur fornleifafræðing við Oslóarháskóla í þætti dagsins, og við Þorgerði Ólafsdóttur. Hvernig nálgumst við rannsóknir á þessari eyju og hvað getur hún mögulega kennt okkur í dag, á tímum mannaldar?

Einnig fjöllum við um ósungna sjómannasöngva og óleysta ráðgátu þeim tengdum í þætti dagsins.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson

Frumflutt

20. nóv. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,