Víðsjá

Þjóðarópera, Halla Einarsdóttir og D-vítamín, La nueva cancion Chilena

Fyrir rétt rúmri viku var mælt fyrir breytingu á lögum um sviðslistir þar sem stofnað er til nýrrar Þjóðaróperu. Gestur Víðsjár í dag verður Finnur Bjarnason, óperusöngvari og verkefnisstjóri um stofnun Þjóðaróperu sem unnið hefur málinu á síðustu mánuðum. Hann segir okkur frá þessari þróun í þættinum.

D-vítamín í Hafnarhúsi líkur á sunnudag svo það fer hver verða síðastur sjá hvað listamenn af yngri kynslóðinni eru hugsa, en ákveðna þræði greina í verkunum. Fókus á mennskuna, handverkið og söguna eru áberandi þræðir á sýningunni og Halla Einarsdóttir kafar einmitt ofan í sögu kvenna frá fyrri öldum og setur fram í áhugaverðu verki. Hún mun flytja gjörning í verkinu í kvöld og verður gestur Víðsjár í dag.

Þorleifur Sigurlásson fjallar um tónlistarstefnu sem varð til í Chile og breyddist út um alla Suður-Ameríku.

Frumflutt

2. maí 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,