Víðsjá

Fuglamál, skáldskaparlist á Grænlandi og G. Weller

Marta María Jónsdóttir, rithöfundur og myndlistamaður, sendi frá sér skáldsögu á dögunum sem nefnist Fuglamál. Bókin er fjölskyldusaga sem segir frá ungu pari sem eignast nokkuð óvenjulegt barn, Ídu, sem talar tungum, fer í undarleg flogaköst og á sér ímyndaðan vin, fuglinn Pótó. Við ræðum við Mörtu Maríu um Fuglamál í þætti dagsins.

Haukur Þorgeirsson rannsóknarprófessor fjallar um horfnu systurþjóð okkar Grænland og þá sérstaklega skáldskaparlistina sem þar var stunduð fyrr á öldum.

Í lok þáttar rifjum við upp erindi frá árinu 2024 um huldutónlistarmanninn G. Weller.

Birt

22. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,