Víðsjá

Samfélag heilagra, barnaefni á 14. öld og Franziscuskóli á Skriðuklaustri

Í Víðsjá dagsins rennum við upp herrasetrinu á menningar- og sögustaðnum Skriðuklaustri og hittum þar Oddnýju Eir Ævarsdóttur, nýjan forstöðumann Gunnarsstofnunar, sem tók við því starfi í janúar síðastliðnum. Meðal þess sem hún er með í farvatninu er glænýr skóli fyrir skrifandi fólk sem hún kallar Franziscuskóla. Haukur Þorgeirsson, rannsóknarprófessor, segir okkue frá Kálfi munki á 14. öld sem orti ekki bara helgikvæði heldur samdi líka barnaefni. Og við kynnum okkur nýútkomið bókverk úr smiðju Birtings, hóps rithöfunda í Ritlist við Háskóla Íslands og tveggja ritstjóra úr Hagnýtri ritstjórn og útgáfu við sama skóla. Bókin Samfélag heilagra er sagnasveigur sem hverfist um rannsókn á mannlegu samfélagi þar sem umbreytandi tímamót í lífi og dauða fólks eru krufin.

Birt

2. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,