Víðsjá

Svipmynd af Skaftfelli á Seyðisfirði

Menningarmiðstöðin Skaftfell á Seyðisfirði var stofnuð árið 1998 og er ein langlífasta sjálfstæða listamiðstöð á landinu. Skaftfell hefur frá upphafi staðið fyrir öflugu sýningahaldi með áherslu á samtímalist og þar hefur líka verið starfrækt veitingahús og gestavinnustofa, sem öllum líkindum er fyrsta sinnar tegundar á landinu. baki stofnun Skaftfells stóð öflugur hópur einstaklinga úr ólíkum áttum sem lagði til ómælda vinnu og mikla ástríðu til þess sjá Skaftfell verða veruleika. Við ætlum í svipmynd dagsins huga þessari merkilegu listamiðstöð, menningarhjarta Austurlands. Rætt er við Tinnu Guðmundsdóttur, myndlistarkonu, fyrrum forstöðukonu og höfund nýrrar bókar um tilurðarsögu Skaftfells, en auk þess Þóru Guðmundsdóttur, arkitekt og frumkvöðul, Pétur Kristjánsson, þjóðfræðing, myndlistarmann og fyrrum forstöðumann Tækniminjasafnsins á Seyðisfirði, Unu Björgu Magnúsdóttur, myndlistarkonu, Þóri Höskuldsson, myndlistarmann og Önnu Margréti Ólafsdóttur, verkefnastjóra í Skaftfelli.

Birt

27. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,