Víðsjá

Bjarmaband Frosta Fjalars, Olga Tokarczuk og rannsókn á gagnkynhneigð

Það er ekki á hverjum degi sem nær óþekktur listamaður uppgötvast í íslensku samfélagi. Hvað þá maður sem setur mark sitt á listasöguna með einkennandi abstraktverkum sem hann vann í einrúmi í nær fjóra áratugi. Í kvöld opnar í Hafnarborg einkasýning Frosta Fjalars, Bjarmaband. Sýningin veitir innsýn í ævistarf listamannsins, sem hefur verið flestum hulið, þar til nú. Við ræðum við Ásdísi Spanó, sýningarstjóra, og listsagnfræðinginn Aðalstein Ingólfsson í Víðsjá dagsins.

Kviss Búmm Bang er framandverkahópur sem hefur það markmiði rannsaka eðlileikann, hvað er eðililegt og hvað ekki, í þeirri von fólk til þess vera meðvitaðri um sinn eigin raunveruleika. Kviss Búmm Bang verða með innsetningu á Hamraborg festival um helgina sem nefnist Hvernig líður gagnkynhneigðum? Við ræðum við Vilborgu Ólafsdóttur eina af meðlimum Kviss Búmm Bang í þættinum.

En við byrjum á verðlaunum. Í gærkvöldi birtist á miðlunum tilkynning um væntanlegan verðlaunahafa hinna Alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness en í ár er það rithöfundurinn Olga Tokarczuk.

Birt

27. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,