Víðsjá

Leyft öllum aldurshópum

Anne Carson og Ölver

Kanadíska skáldið Anne Carson hlaut nóbelsverðlaunin í bókmenntum í dag fyrir djörfung og nýjungagirni í höfundaverki sínu, en með glettnu samtali við hina klassísku hefð hafi henni tekist að skapa nýja tegund samtímabókmennta. Við kynnumst nýja nóbelskáldinu í dag, ræðum við Ragnar Helga Ólafsson, rithöfund, sem hefur gefið út og þýtt verk hennar og rifjum upp rýni Gauta Kristmannssonar í verk hennar; Albertine æfingarnar.

Þá komum við einnig við á sportbarnum Ölveri í Glæsibæ en á morgun verður hægt að fara þangað að sjá fótboltadanssýninguna “Ég er kominn heim” eftir Birtu Ásmundsdóttur. Við ræðum við hitti danshöfundinn Birtu og tvo aðra aðstandendur verksins, þær Ingu Maríu Olsen dansara og Önnu Róshildi Benediktsdóttur Böving, tónskáld.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir, Tómas Ævar Ólafsson og Pétur Eggertsson.

Þættir

,