• 00:01:28Ljóðstafur Jóns úr Vör: Sunna Dís Másdóttir
  • 00:16:19Marat/Sade: Rýni
  • 00:26:22Myrkir músíkdagar: Ásmundur Jónsson

Víðsjá

Myrkir músíkdagar, Marat/Sade, Ljóðstafur Jóns úr Vör

Sunna Dís Másdóttir tók við Ljóðstaf Jóns úr Vör við hátíðlega athöfn um helgina, og kallast sigurljóð hennar eftir þegar þú ert búin deyja?.

Ljóðstafurinn, sem hefur verið veittur frá 2001 í minningu skáldsins Jóns úr Vör, er veittur lokinni samkeppni þar sem öllum er frjálst senda inn frumsamin ljóð, og undir dulnefni. Hér takast því á reyndari skáld og þau yngri í jöfnum leik. Alls bárust 230 ljóð í keppnina þessu sinni. Sunna Dís verður gestur okkar í dag.

Myrkir músíkdagar hefjast á morgun, tónlistarhátíð sem er eins og vanalega tileinkuð samtímatónlist, bæði innlenri og erlendri. Megnið af hátíðinni fer fram í Hörpu þessu sinni og margir tónlistarhópanna eru þekktir þátttakendur á þessari rótgrónu hátíð: Caput, Kammersveit Reykjavíkur, Nordic Affect og Sinfóníuhljómsveit Íslands en aðrir koma henni í fyrsta sinn. Ásmundur Jónsson, listrænn stjórnandi hátíðarinnar verður gestur Víðsjár í dag.

Leikhópurinn LabLoki, í samstarfi við Borgarleikhúsið, frumsýndi um liðna helgi eitt af öndvegisverkum 20.aldar, Marat/ Sade eftir Peter Weiss. Eva Halldóra Guðmundsdóttir rýnir í uppsetninguna í þætti dagsins.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Guðni Tómasson

Frumflutt

23. jan. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,