Víðsjá

Ensamble Adapter, Cage og Takemitsu, Djazzdagurinn, heimspekipistill

Næstkomandi sunnudag mun kammerhópurinn Ensamble Adapter frumflyjta tónverk eftir John Cage og Toru Takemitsu í Hörpu, tónverk sem kallast Vis á vis, og sem hefur verið týnt frá 1986. Eftir ævintýralega rannsóknarvinnu þeirra Gunnhildar Einarsdóttur hörpuleikara og Matthias Engler slagverksleikara, þar sem viðtöl og bókasafnsgrúsk í Bandaríkjunum, antíkbúð í Japan og plötusafn frá Reykjavík koma við sögu, hefur hópnum tekist endurskapa verkið. Meira um það í þætti dagsins.

Sigmar Þór Matthíasson, Óskar Guðjónsson og Rebekku Blöndal kom í heimsókn og segja frá Alþjóðlega djazzdeginum sem haldinn verður hátíðlegur um alla borg á morgun.

Freyja Þórsdóttir fjallar um tengsl við menningu og náttúru í heimspekipistli.

Frumflutt

29. apríl 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,