Víðsjá

Svipmynd af píanóleikara / Edda Erlendsdóttir

Edda Erlendsdóttir fæddist á gamlársdag árið 1950 í Reykjavík og ólst upp í Laugarneshverfinu. Hún stundaði nám við Tónlistarskólann í Reykjavík og fór í framhaldsnám í tónlistarháskólann í París og hefur verið búsett í borginni nánast allar götur síðan. Á ferli sínum hefur Edda komið víða við, haldið tónleika um víða veröld og gefið út fjölda diska. Hún hefur kennt og starfað við við Tónlistarháskólann í Lyon og í Versölum en er gestakennari við Listaháskóla Íslands. Edda verður gestur okkar í svipmynd dagsins.

Frumflutt

21. feb. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,