Víðsjá

Bernd Ogrodnik / Svipmynd

Bernd Ogrodnik er fæddur og uppalinn í Þýskalandi en hefur búið hér á landi frá árinu 1982. Hann heillaðist af veröld brúðuleikhússins á unga aldri og var snemma farinn búa til sína eigin töfraheima. Hann ætlaði samt alltaf verða tónlistarmaður og megnið af tímanum fór í æfa sig á hljóðfæri, allt þar til hann fékk nóg. Pressan í náminu og andrúmsloft eftirstríðsáranna í Þýskalandi þrengdu og hann ákvað leggja land undir fót. Við tóku nokkur ár af ferðalögum um heiminn og ýmiskonar lærdómur. Allt þar til hann endaði á Íslandi og ákvað hann væri í raun brúðugerðamaður. Í dag er hann heimsþekktur brúðugerðamaður og margverðlaunaður fyrir sýningar sínar. Bernd trúir staðfastlega á umbreytingar og heilunarmátt listarinnar og þegar öll leikhús lokuðu í Covid ákvað hann breiða boðskapinn út á annan hátt. Hann stofnaði brúðugerðaskólann Worlds of Puppets á netinu en það verkefni hefur óvænt sprungið út og tekur í dag nær allan hans tíma. Hann settist einnig niður á þessum tímamótum og skrifaði bók. Við heimsækjum Bernd í þætti dagsins.

Birt

25. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,