• 00:01:41Rúnir á Íslandi: Þórgunnur Snædal
  • 00:18:18Heimspekipistill: Freyja Þórsdóttir
  • 00:29:36Barbí í femenísku ljósi

Víðsjá

Rúnir, Barbie, túlkun og upplifun

Hugvísindaþing var haldið í Háskóla Íslands um helgina en þar var kvikmyndin um Barbie þar meðal annars til umræðu út frá fræðilegu sjónarhorni feminískra útópía. Við ræðum við Katrínu Pálmadóttur Þorgerðardóttur, heimspekinema, um Barbie og útópíur í þætti dagsins.

Pistlahöfundurinn Freyja Þórsdóttir fjallar um það hvernig túlkun hefur áhrif á upplifun. Hvernig það sem við trúum hefur umbreytandi áhrif á okkur og veruleikann. Og hvernig skilningur og góð trú gerir okkur kleift sjá skýrar, kalla fram betri möguleika og þar með skapa fallegri heim.

Þórgunnur Snædal, doktor í rúnafræðum gaf út í vetur yfirlitsrit um rúnir á Íslandi, þar sem hún birtir afrakstur rannsókna sinna á íslenskri rúnasögu frá landnámi til nútímans. Bókin var á dögunum tilnefnd til viðurkenningar Hagþenkis. Við ræðum við Þórgunni í þætti dagsins.

Umsjón: Tómas Ævar Ólafsson og Halla Harðardóttir

Frumflutt

11. mars 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,