Víðsjá

Hollvættir á heiði, Pilar Quintana og nostalgía

Kólumbíski rithöfundurinn Pilar Quintana kom til landsins í byrjun október og kom fram á litlum viðburði í Veröld, húsi Vigdísar en einnig dvaldi hún á Bifröst við skrif í rúma viku. Við náðum tali af henni á leiðinni aftur út og ræðum feril hennar og skrif í þætti dagsins. Snorri Rafn Hallsson heldur áfram pistlaröð sinni um Nostalgíu, eða fortíðarþrá og þessu sinni leitar hann aftur fyrir fortíðina til augnabliksins sem tíminn sjálfur fór af stað. Við heyrum einnig af nýju íslensku leikverki, barnaleikritinu Hollvættir á heiði eftir Þór Tulinius, leikara og leikstjóra. Verkið verður frumsýnt í Sláturhúsinu á Egilsstöðum um næstu helgi.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson

Frumflutt

2. nóv. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,