Víðsjá

Svipmynd af tónlistarmanni / Steingrímur Karl Teague

Steingrímur Karl Teague er söngvari, djazzpíanisti, lagahöfundur og bókmenntafræðingur, sem ólst upp á Seltjarnarnesi með viðkomu í Bandaríkjunum. Hann er hvað þekktastur fyrir vera einn af meðlimum hljómsveitarinnar Moses Hightower, sem setti alveg nýjan tón í íslenska tónlistarflóru árið 2010 með plötunni Búum til börn. Sálarskotinn fönk hljóðheimurinn í bland við hrífandi íslenska texta hefur svo þróast áfram á fjórum plötum, síðast Lyftutónlist sem kom út 2020.

Steingrímur hefur auk þess spilað og sungið með fjöldanum öllum af tónlistarfólki í gegnum árin, þar á meðal Of Monsters and Men og Uppáhellingunum sem einmitt gáfu út plötuna Tempó Primo. Árið 2021 gaf Steingrímur út plötuna More Than You Know með söng­kon­unni Silvu Þórðardótt­ur þar sem dúóið útsetur og leikur sér með fræga djazzstandarda.

Frumflutt

8. maí 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,