Víðsjá

Hreint ekki neitt, Póstkort og svipbrigði, Andrúmsloft Viktoríu Blöndal

Póstkort og svipbrigði er yfirskrift tónleika sem þær Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari og Elísabet Waage hörpuleikari halda í Salnum í Kópavogi á sunnudag. Á efnisskrá eru verk eftir eftir úkraínska fiðluleikarann Andrii Didorenko og hollenska tónskáldið Jurriaan Andriessen en þar auki þrjú verk sem samin eru sérstaklega fyrir þær Laufeyju og Elísabetu, verkin Árferð eftir Báru Grímsdóttur, Svipbrigði eftir Kolbein Bjarnason og Notre Dame eftir Pál Ragnar Pálsson. Við ræðum við þær stöllur um verkin í þætti dagsins, og samstarfið sem hefur staðið í þrjá áratugi.

Einnig heimsækjum við Portfolio gallerí þar sem Halldór Ragnarsson sýnir Hreint ekki neitt og Viktoría Blöndal veltir fyrir sér andrúmslofti.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson

Frumflutt

15. feb. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,