Víðsjá

Hús sem hverfa, Rubin Pollock, Ormstunga/rýni

Síðastliðnar vikur hefur Víðsjá ferðast um borgarlandslagið með Henný Hafsteinsdóttur minjaverði Reykjavíkur og byggingar sem gætu verið á leið í niðurrif. Í dag hittum við Henny á miklum uppbyggingarreit, Borgartúni 5, sem í daglegu tali er kallaður Vegagerðarreiturinn. Þarna er finna lágreistar iðnaðarbyggingar frá miðri síðustu öld sem eru meðal fárra minja um liðna tíma innan um háreistar nýbyggingarnar í Borgartúninu.

Rubin Pollock sem getið hefur sér gott orð sem gítarleikari rokkhljómsveitarinnar Kaleo sendi frá sér plötuna Tongue Tied. Á plötunni er þó ekki finna rokktónlist heldur safn ósunginna laga, sem blanda saman tónlistarstefnum á afar lífrænan hátt. Við heyrum í Rubin Pollock í þættinum.

Katla Ársælsdóttir rýnir í Ormstungu, sem frumsýnd var í síðustu viku.

Frumflutt

2. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,