Víðsjá

Svipmynd: Goddur

Guðmundur Oddur Magnússon, oftast kallaður Goddur, er listamaður og fyrrverandi prófessor í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands. Hann stundaði myndlistarnám við nýlistadeild MHÍ og lærði svo grafíska hönnun við Emily Carr University of Art & Design í Kananda.

Goddur kom á námi í grafískri hönnun við Myndlistarskólann á Akureyri og varð deildarstjóri í grafískri hönnun við MHÍ 1995 til loka skólans. Síðan vann hann stofnun hönnunardeildar við Listaháskóla Íslands og var þar deildarstjóri í grafískri hönnun frá upphafi. Opinberlega er Goddur hættur kenna og sestur í helgan stein en hann situr ekki auðum höndum heldur stundar rannsóknir af kappi og heldur fyrirlestra.

Það er aðeins eitt á dagskrá í Víðsjá dagsins, og það er listamaðurinn og kennarinn Goddur.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Guðni Tómasson

Frumflutt

25. jan. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,