Víðsjá

Á hafi kyrrðarinnar, Cormac McCarthy, Barbara Hannigan

Bandaríski rithöfundurinn Cormac Mccarthy er allur. Tilkynnt var um andlát hans í gær. McCarthy var 89 ára og á hann baki afskaplega farsælan feril sem skáldsagnahöfundur, einn þekktasti samtímahöfundur Bandaríkjanna. Meðal þekktustu verka hans eru Blood Meridian, The Road og hinn svokallaði landamæraþríleikur - All the pretty horses, The Crossing og Cities of the plain. Hann var alamerískur bókmenntarisi, líkt við Faulkner og Hemingway og það þarf takast á um þá, eins og Einar Kári Jóhannsson bókmenntafræðingur og útgefandi segir okkur frá í þætti dagsins.

Myndlistarkonan Hildur Ásgeirsdóttir Jónsson, sem sýnir um þessar mundir í Hafnarborg. hefur búið meirihluta ævi sinnar í Cleveland í Ohio. Hún kemur reglulega hingað til lands og tekur þá ljósmyndir sem hún vinnur síðan úr þegar heim er komið. Helsta viðfangsefni hennar er náttúra Íslands og sérstaka birta sem hér er finna. Hún tengir viðfangsefni sitt þó ekki endilega við ræturnar eða þjóðernið, heldur vill hún miðla þeirra tilfinningu vera manneskja í víðáttumikilli veröld. Við ræðum við Hildi og Aldísi Arnardóttur sýningarstjóra í þætti dagsins.

Við heyrum líka örsnöggt í kanadísku hljómsveitarstjóranum og söngkonunni Barböru Hannigan sem kemur fram á loka tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands annað kvöld.

Frumflutt

14. júní 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,