Víðsjá

All in Animal Time, Fíasól, Serótónínendurupptökuhemlar og Kaíró

Karólína Rós Ólafsdóttir, skáld og bókavörður sendi frá sér bókina All in Animal Time í Skotlandi fyrir skömmu og fagnaði útgáfunni hér á landi í gær. Við ræðum við skáldið og heyrum upplestur.

Leikritið Fíasól gefst aldrei upp! var frumsýnt í Borgarleikhúsinu á dögunum. Trausti Ólafsson fór sjá leikverkið og segir frá upplifun sinni í þætti dagsins.

Við höldum alla leið til Kairó í Egyptalandi, en þar var á dögunum opnuð stór alþjóðleg myndlistarsýning þar sem fimm íslenskir myndlistarmenn eiga verk. . Víðsjá var með óbeinan útsendara á svæðinu, Guðna Tómasson , sem sendir okkur skýrslu.

Gréta Sigríður Einarsdóttir rýnir í nýlega skáldsögu Friðgeirs Einarssonar sem kallast Serótónínendurupptökuhemlar.

Umsjón: Tómas Ævar Ólafsson og Halla Harðardóttir

Frumflutt

7. des. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,