Víðsjá

Flökkutaugin, andrúmsloft í réttum og streymisveitur

Flökkusinfónía, samstarfsverkefni Gjörningaklúbbsins og Sinfóníuhljómsveitar íslands, verður frumflutt á myrkum músíkdögum næstkomandi fimmtudag. Við gerð verksins fengu þær Gjörningaklúbbskonur, Eirún Sigurðardóttir og Jóní Jónsdóttir, tónskáldin Unu Sveinbjarnardóttur og Óla Björn Ólafsson til liðs við sig ásamt einvala liði kvikmyndagerðar­ fólks, dansara, leikara og fimleikafólks. Útkoman verður veisla fyrir öll skynfæri og útkoman mun mögulega örva flökkutaugina.

Víðsjá kynnir einnig til leiks nýjan pistlahöfund. Viktoría Blöndal, höfundur og leikstjóri, ætlar reyna fanga andrúmsloft hér á næstu vikum. Og í sínum fyrsta pistli í dag kannar hún andrúmsloftið í sauðfjárréttum norður í Hörgársveit.

Tónlistarmaðurinn Svavar Knútur sendi á dögunum frá sér pistil á samfélagsmiðlinum Linkedin sem fjallaði um vandasamt streymisveitumál sem íslenskir tónlistarmenn standa frammi fyrir í dag. Gígja Hólmgerisdóttir ræðir við hann í þætti dagsins.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson

Frumflutt

18. jan. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,