Víðsjá

Með verkum handanna, Ice Hot Nordic Dance, Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs

Í Þjóðminjasafni stendur yfir merkileg sýning sem kallast Með verkum handanna, en þar er hægt sjá einhver mestu verðmæti íslenskrar listasögu. Um er ræða þau fimmtán íslensku refilsaumsklæði sem varðveist hafa, samankomin í fyrsta sinn. Níu þeirra eru varðveitt í Þjóðminjasafni Íslands en sex þeirra eru fengin láni frá erlendum söfnum. Við hittum Svanhildi Óskarsdóttur, prófessor í norrænum fræðum, á sýningunni.

Nina Hjálmarsdóttir segir frá Icehot Nordic Dance Platform, viðburði sem haldinn er annaðhvert ár í einhverri borg á Norðurlöndunum, þar sem boðið er upp á það nýjasta í samtímadansi.

Einnig lítum við inn í Gunnarshús þar sem tilnefningar til Norrænu bókmenntaverðlaunanna vory kynntar í morgun.

Frumflutt

22. feb. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,