• 00:04:09Sequences: pistill
  • 00:14:17Bókmenntafíaskó í Frankfurt
  • 00:34:47Barbara Strozzi

Víðsjá

Verðlaunafíaskó í Frankfurt, Sequences og Barbara Strozzi

Kastljós fjölmiðla beinist um þessar mundir bókamessunni í Frankfurt. Fjölmargir rithöfundar og útgefendur víðsvegar saka aðstandendur messunnar um þagga niður í palestínskum röddum, en athöfn sem verðlauna átti palestínska höfundinum Adaniu Shibli var tekin af dagskránni vegna atburða síðustu daga í Ísrael og Palestínu. Yfir 600 höfundar og útgefendur hafa sett nafn sitt undir bréf sem gagnrýnir aðstandendur bókamessunnar og bókmenntaverðlaunanna LiBeraturpreis.

Við veltum þessu fyrir okkur í þætti dagsins með Kristjáni B. Jónassyni bókaútgefanda og palestínska skáldinu Mazen Maarouf. Einnig heyrum við af 17.aldar tónskáldinu Barböru Strozzi sem var hyllt sem ein af bestu söngkonum og afkastamestu tónskáldum síns tíma og af listahátíðinni Sequences sem hófst með pompi og prakt síðastliðinn föstudag.

Frumflutt

16. okt. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,