Víðsjá

Guðrún Kristjánsdóttir / Svipmynd

Guðrún Kristjánsdóttir er fædd árið 1950 og nam myndlist í Reykjavík og Aix-en-Provence. Hún hélt sína fyrstu einkasýningu árið 1986 og hefur síðan sýnt víða, hér á landi og erlendis. Nýverið opnaði yfirlitssýning á verkum Guðrúnar á Kjarvalsstöðum og það er þar sem Víðsjá hitti listakonuna sem er gestur þáttar í Svipmynd vikunnar.

Þær fáu minningar sem Guðrún á úr bernsku tengjast náttúrunni. Hún man til mynda útsýnið úr bílnum þar sem hún sat í aftursætinu á leið út í náttúruna með föður sínum frístundamálaranum. Seinna tóku við ferðir inn á hálendið með eiginmanni og börnum sem áttu eftir vera innblástur listaverkum í ólíka miðla. Guðrún vinnur oft lengi hverju verki, nálgast það eins og rannsakandi úr ólíkum áttum en leyfir oftar en ekki innsæinu stýra ferlinu. Hún hefur þróað sitt eigið tungumál í listinni og lagt í það endalausa þolinmæði, enda segir hún tímann vera einn stærsta þáttinn í myndlistariðkun. Og Víðsjá tók sér góðan tíma til ræða allt þetta og margt annað við Guðrúnu á Kjarvalsstöðum. Ferðir um hálendið, áhrif Karls Kvaran og Matisse, línuna á milli hins óhlutbundna og hlutbundna, þokuna, surtarbrand,sjóndeildarhringinn, útsýni og innsæi. Þolinmæði og tíðaranda. Meira um það í þætti dagsins.

Birt

11. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,