• 00:02:27Haraldur Sigurðsson Samfélag eftir máli
  • 00:33:57Jazzdúettar á Múlanum

Víðsjá

Samfélag eftir máli, djazzdúettar á Múlanum

Samfélag eftir máli: Bæjarskipulag á Íslandi og fræðin um hið byggða umhverfi, eftir Harald Sigurðsson skipulagsfræðing, hlaut á dögunum Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki fræðibóka og rita almenns efnis. Haraldur hefur eftir þrjátiu ára störf við skipulagsmál enn trú á sömu hlutum og toguðu hann upphaflega í nám til Toronto. Mikilvægast af öllu verndun náttúrunnar, nýta landið vel og með kynslóðir framtíðar í huga. sama skapi fjölbreytt húsnæði, blöndun félagshópa og lækkun húsnæðiskostnaðar mikilvægasta verkefnið. Haraldur verður gestur okkar í dag.

Vordagskrá Jazzklúbbsins Múlans hófst á Björtuloftum í Hörpu í síðasta mánuði en tónleikar á þeirra vegum munu fara fram á hverju miðvikudagskvöldi fram í lok máimánaðar. Næsta miðvikudagskvöld verður dúettakvöld og stíga á stokk tveir nokkuð framsæknir dúettar. Annars vegar eru það Tumi Torfason og Bjarni Már Ingólfsson og hins vegar Sölvi Kolbeinsson og Magnús Trygvason Elíassen. Við ræðum við einn útsendara úr hverri sveit í þætti dagsins, þá Tuma og Sölva.

Frumflutt

6. feb. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,