Víðsjá

Rót brúðusýning, Huldur Í fossgljúfri og Nína Hjálmars í Feneyjum

Kammerkórinn Huldur var stofnaður fyrir um fimm árum síðan. Kórinn samanstendur mestu af fyrrverandi meðlimum kórs Menntaskólans við Hamrahlíð en stofnandi kórsins og kórstjóri er Hreiðar Ingi Þorsteinsson. Huldur hefur gefið út plötu sem kallast Í fossgljúfri en meirihluti verkanna er saminn af meðlimum kórsins. Við fáum tvo þeirra til segja okkur frá plötunni, þá Kormák Loga Bergsson og Arvid Ísleif Jónsson Schirmacher.

Rót er ljóðræn brúðuleiksýning fyrir alla fjölskylduna sem sýnd verður á Listahátíð í Reykjavík. Verkið er úr smiðju Handbendi, margverðlaunaðs brúðuleikhúss á Norðvesturlandi sem stofnað var árið 2016 af Gretu Clough leikstjóra, leikara og flytjanda. Þau Sigurður Arent Jónsson, leikari og brúðuleikari heimsækja hljóðstofu.

Nína Hjálmarsdóttir, menningarrýnir, segir okkur frá sinni upplifun af Feneyjatvíæringnum, en hún er nýkomin heim eftir hafa verið á svæðinu skoða myndlist í heila fimm daga.

Birt

19. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,