Víðsjá

Tilfinningasteinar, Auðlindagarðar og Jón Nordal tónleikar Caput

Samsýningin Auðlindagarðar fjallar um venslin á milli stóriðju og stafrænna innviða samtímans, þar sem stórar ákvarðanir um náttúruauðlindir eru teknar í sterílu skrifstofuumhverfi og náttúra sem flest okkar sjá er á skjáhvílum vinnutölvanna okkar. Listamennirnir, þau Agnes Ársælsdóttir, Hrafkell Tumi Georgsson, Sölvi Halldórsson og Eleni Iermia, vinna staðbundið inn í Slökkvistöðina, sem var áður hluti af Áburðarverksmiðju ríkisins. Við lítum þar við í síðari hluta þáttar. Tumi Árnason fjallar um nýafstaðna tónleika Caput hópsins í tilefni af 100 ára fæðingarafmæli Jóns Nordal. Og við komum við í Höggmyndagarðinum þar sem myndlistarkonan Ragnheiður Sigurðardóttir Bjarnason sýnir um þessar mundir skúlptúra sem hún kallar Tilfinningasteina, en þeir eru afsprengi rannsóknar hennar á tilfinningalegum orðaforða, sem hún segist ekki vera neitt sérstaklega góð í sjálf.

Birt

19. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,