Víðsjá

Myndlist á Íslandi: ný myndlistarstefna og framtíðarsýn

Íslensku myndlistarverðlaununum verða afhent í kvöld við hátíðlega athöfn í Iðnó, en þetta er í sjötta sinn sem verðlaunin eru veitt. Í dag stendur svo yfir ráðstefna í Þjóðmenningarhúsinu, þar sem staða myndlistar í íslensku samfélagi er reifuð. ráðstefnunni standa Menningar- og viðskiptaráðuneytið og Myndlistarmiðstöð. Af þessu tilefni verður Víðsjá dagsins með öðruvísi sniði, við fáum til okkar gesti sem taka til máls á ráðstefnunni og ræðum myndlistarmenningu og framtíð myndlistarstarfsemi á Íslandi. Gestir okkar verða Dorothee Kirch, Hlynur Hallsson, Ingibjörg Sigurjónsdóttir og Bjarki Bragason Og svo heyrum við einnig í Pari Stave, forstöðukonu Skaftfells. Pari flutti frá New York til Seyðisfjarðar árið 2022 en hún starfaði áður sem sýningarstjóri hjá Metropolitan safninu í New York.

Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.

Frumflutt

16. mars 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,