Síðdegisútvarpið

Bílastæðagjöld, áfallaþol, ofurskálin og Hringfarinn

Lögmaðurinn Helga Vala Helgadóttir er gagnrýninn á nýtt og umdeilt fyrirkomulag Reykjavíkurborgar sem er sekta bíla sem leggja í sínum stæðum í miðborginni. Hún hefur þegar fengið skjólstæðinga til sín sem vilja úrlausn sinna mála, en borgin hefur tilkynnt Önnu Ringstead fái endurgreidda sekt eftir hún var sektuð fyrir leggja bíl sínum við heimili sitt við Frakkastíg. Dóra Björt Guðjónsdóttir oddviti Pírata var hjá okkur á dögunum og útskýrir afstöðu borgarinnar, en svo virðist sem málið mögulega flóknara en við héldum.

Gísli Rafn Ólafsson, þingmaður Pírata, býr á Reykjanesinu og ætlar ræða eldgosið og viðbrögð við náttúruhamförum almennt. Hann býr í Reykjanesbæ, hefur áratuga reynslu af viðbragðsstörfum við náttúruhamförum, bæði á Íslandi og erlendis, og hefur mikið látið til sín taka í þessum málum. Síðastliðinn mánudag var hann málshefjandi sérstakrar umræðu um almannavarnir og áfallaþol Íslands.

Henry Birgir Gunnarsson, íþróttafréttastjóri Sýnar, kemur til okkar og ræðir Ofurskálina sem fram fer í amerískum fótbolta á sunnudaginn. Hann ásamt Andra Ólafssyni og Eiríki Stefáni Ásgeirssyni, eru líklega ábyrgir fyrir gríðarlegum áhuga og stemningu sem fylgir þessari merkilegu menningaruppákomu sem hefur slæðst inn í íslenska menningu og er núna ómissandi hjá mörgum.

Kristján Gíslason, betur þekktur sem Hringfarinn, fór til Patagóníu og ætlar segja okkur frá ferðalaginu í föstudagsviðtalinu.

Sunnudaginn 11. febrúar verður samverustund og opið hús í Vídalínskirkju í Garðabæ en Grindavíkurkirkja hefur staðið þétt baki söfnuði sínum í þeim hörmungum sem dunið hafa yfir bæjarbúa í þrjá mánuði.

Sr. Elínborg Gísladóttir sóknarprestur í Grindavík hefur haldið utan um þetta starf ásamt kór kirkjunnar og safnaðarstarfsfólki. Kór Grindavíkurkirkju syngur ásamt hljómsveit og sr. Elínborg flytur hugvekju.

Hægt verður tendra á kerti og eiga hljóða stund í kirkjunni.

Atli Fannar Bjarkason ræðir við okkur um furðulegustu meme þessa stundina og verður farið yfir samsæriskenningar tengdar Taylor Swift.

Frumflutt

9. feb. 2024

Aðgengilegt til

8. feb. 2025
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þegar fyrsta hluta úthlutunar leikskólaplássa í Reykjavík lauk föstudaginn 10. maí höfðu foreldrar rúmlega 1700 barna fengið boð og þegið vistun í borgarrekna leikskóla.

Hildur Lilja Jónsdóttir, fagstjóri leikskóla í Austurmiðstöð sem einnig er í innritunarteymi skóla- og frístundasviðs kemur til okkar á eftir og fer yfir stöðuna í þessum málaflokki með okkur.

Halla Hrund Logadóttir forsetaframbjóðandi verður síðan hjá okkur í seinni hluta þáttar á grillinu eins og við höfum kosið kalla þennan dagskrárlið. Við spyrjum Höllu spjörunum úr og freistum þess kynnast henni betur.

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO telur akstur vegna farsímanotkunar einn stærsti áhættuþáttur umferðarslysa í heiminum.

Allt bendir til þess fólk sem notar síma við akstur fjórum sinnum líklegra til lenda í slysi. Þá er tuttugu og þrisvar sinnum líklegra fólk sem les og eða skrifar skilaboð meðan á akstri lendi í slysi. hefur Samgöngustofa í samvinnu við tryggingarfélagið Sjóvá ákveðið hrinda af stað herferð gegn farsímanotkun sem ber yfirskriftina "EKKI TAKA SKJÁÁHÆTTUNA" Það er hættulegt tala í síma undir stýri. Gunnar Geir Gunnarsson deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar Samgöngustofu kemur til okkar.

Íbúar í Ölfusi eru fara kjósa samhliða forsetakosninunum um hvort þeir vilji breyti á deiluskipulagi þannig mölunarverskmiðja Hedelberg geti risið í næsta nágrenni við Þorlákshöfn. Það er búið boða til íbúðarfundar í kvöld og hingað er komin Ása Berglind Hjálmarsdóttir bæjarfulltrúi í minnihluta bæjarstjórnar Ölfuss.

Þættir

,