Síðdegisútvarpið

29. júní

Við byrjuðum á því bregða okkur vestur á Patreksfjörð þar sem okkar eina sanna Steiney Skúladóttir hitti þá Guðmund Björn Þórsson og Ásgeir Jónasson við Pollinn svokallaða.

Starfshópur um samhæfingu vegna móttöku flóttafólks kynnti fyrir borgarráði í dag samantekt á stöðu mála varðandi móttöku fólks í leit alþjóðlegri vernd og fólks sem komið er með stöðu flóttafólks. Heiða Björg Hilmisdóttir formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar heimsótti okkur og fór yfir skýrslu hópsins.

Atli Fannar Bjarkason færði okkur Meme vikunnar venju og þar kom ópersöngur við sögu.

Nokkur umræða hefur skapast í kjölfar tillagna um leyfa ungmennum sleppa sundnámi standist þau stöðupróf, enda finni sum þeirra fyrir kvíða gagnvart sundkennslunni og umgjörð hennar. Hildur Eir Bolladóttir prestur, sem unnið hefur mikið með ungmennum, skrifaði áhugaverðan pistil á vefsíðu sína í þessu samhengi og hún var á línunni og rakti sínar pælingar í þessu samhengi.

Fjölmennasta golfmót Íslandssögunnar hefst á morgun. Mótið kallast Gull 24 open þar sem ræst er út viðstöðulaust í 24 tíma, en gera á atlögu því setja heimsmet á mótinu. Þórður Rafn Gissurarson nýráðinn framkvæmdarstjóri golfklúbbsins Kiðjabergs sagði okkur nánar frá þessu.

Okkar maður í Brussel, Björn Malmquist var í beinni frá blaðamannamiðstöð leiðtogafundar ESB. Fundurinn er stór í sniðum og hafa flestir leiðtogar aðildaríkjanna sótt fundinn. Björn fór yfir helstu tíðindi af fundinum með okkur.

Tónlist:

MUGISON - Stóra stóra ást.

HARRY STYLES - Adore You.

SUPERSERIOUS - Bye Bye Honey.

EVERYTHING BUT THE GIRL - Caution to the Wind.

EGILL SÆBJÖRNSSON - I Love You So.

NEW ORDER - True Faith.

DILJÁ - Crazy.

Lights On The Highway - Ólgusjór.

NANNA - Disaster master.

MADONNA - Papa Don't Preach.

Frumflutt

29. júní 2023

Aðgengilegt til

28. júní 2024
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þegar fyrsta hluta úthlutunar leikskólaplássa í Reykjavík lauk föstudaginn 10. maí höfðu foreldrar rúmlega 1700 barna fengið boð og þegið vistun í borgarrekna leikskóla.

Hildur Lilja Jónsdóttir, fagstjóri leikskóla í Austurmiðstöð sem einnig er í innritunarteymi skóla- og frístundasviðs kemur til okkar á eftir og fer yfir stöðuna í þessum málaflokki með okkur.

Halla Hrund Logadóttir forsetaframbjóðandi verður síðan hjá okkur í seinni hluta þáttar á grillinu eins og við höfum kosið kalla þennan dagskrárlið. Við spyrjum Höllu spjörunum úr og freistum þess kynnast henni betur.

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO telur akstur vegna farsímanotkunar einn stærsti áhættuþáttur umferðarslysa í heiminum.

Allt bendir til þess fólk sem notar síma við akstur fjórum sinnum líklegra til lenda í slysi. Þá er tuttugu og þrisvar sinnum líklegra fólk sem les og eða skrifar skilaboð meðan á akstri lendi í slysi. hefur Samgöngustofa í samvinnu við tryggingarfélagið Sjóvá ákveðið hrinda af stað herferð gegn farsímanotkun sem ber yfirskriftina "EKKI TAKA SKJÁÁHÆTTUNA" Það er hættulegt tala í síma undir stýri. Gunnar Geir Gunnarsson deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar Samgöngustofu kemur til okkar.

Íbúar í Ölfusi eru fara kjósa samhliða forsetakosninunum um hvort þeir vilji breyti á deiluskipulagi þannig mölunarverskmiðja Hedelberg geti risið í næsta nágrenni við Þorlákshöfn. Það er búið boða til íbúðarfundar í kvöld og hingað er komin Ása Berglind Hjálmarsdóttir bæjarfulltrúi í minnihluta bæjarstjórnar Ölfuss.

Þættir

,