Síðdegisútvarpið

2.janúar

Landinn settist niður eins og alltaf á gamlárskvöld og horfði á Áramótaskaupið. En hvað fannst hlustendum okkar um skaupið í ár ? Við opnum fyrir símann á eftir og vonumst til heyra í ykkur og heyra ykkar skoðun.

Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins verður á línunni hjá okkur í þættinum en hann gagnrýnir aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar í orkumálum en orkuskortur blasir við hans mati ef ekkert verður gert. Hann segir forsætisráðherra enn og einu sinni reyna tefja málið með tali um móta orkustefnu til framtíðar. Þá segir Jón hann beri ekkert traust til ríkisstjórnarinnar. Við tölum við Jón á eftir.

Ekki er útlit fyrir hægt verði aflétta rýmingu í Seyðisfirði í dag, en ekki er talið til frekari rýmingar komi. Flóð hafa fallið í öðrum fjörðum eystra, en þó ekki í byggð. Við ætlum hringja austur og heyra í Hildi Þórisdóttur íbúa á Seyðisfirði og sveitastjórnarfulltrúa í Múlaþingi og spyrja hana út í stöðuna í bænum og hvernig bæjarbúar hafi það við þessar aðstæður.

Síðar í vikunni nánar tiltekið á fimmtudaginn verður aðgengileg á Sjónvarpi Símans leikin íslensk þáttaröð sem nefnist Kennarastofan. Hugmyndasmiður þáttanna Jón Gunnar Geirdal kemur til okkar á eftir ásamt Valdimar Víðissyni skólastjóra og verðandi bæjarstjóra í Hafnarfirði en serían er stórum hluta byggð á hans karakter. Við fræðumst meira um þetta hér á eftir þegar þeir Jón og Valdimar kíkja í heimsókn.

Á dögunum birti Ragga Nagli mynd af morgunrútínu barnlauss áhrifavalds og með myndinni ráðlagði hún fólki stinga eyrantöppum í eyrun og hlaupa eins hratt og það gæti næst þegar barnlaus kornungur einkaþjálfari með sveigjanlegan vinnutíma segði því tileinka þér heilsusamlegri morgunrútínu. Flest fólk yfir höfuð bara reyna lifa morguninn af og ætti því ekki vera of gagnrýnið á sjálft sig. Við ætlum slá á þráðinn til Röggu á eftir, svona í upphafi árs og heyra í henni hljóðið, en þetta er árstími sem fólk á til setja sér háleit markmið fyrir nýja árið, jafnvel svo háleit erfitt er standa við þau.

En við byrjum á þessu: Flughálka er víða um land og það sama á við hér á höfuðborgarsvæðinu þar sem erfitt er fyrir gangandi vegfarendur komast leiða sinna. Hjalti J Guðmundsson stjórnandi reksturs og umhirðu borgarlandsins er á línunni hjá okkur.

Frumflutt

2. jan. 2024

Aðgengilegt til

1. jan. 2025
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þegar fyrsta hluta úthlutunar leikskólaplássa í Reykjavík lauk föstudaginn 10. maí höfðu foreldrar rúmlega 1700 barna fengið boð og þegið vistun í borgarrekna leikskóla.

Hildur Lilja Jónsdóttir, fagstjóri leikskóla í Austurmiðstöð sem einnig er í innritunarteymi skóla- og frístundasviðs kemur til okkar á eftir og fer yfir stöðuna í þessum málaflokki með okkur.

Halla Hrund Logadóttir forsetaframbjóðandi verður síðan hjá okkur í seinni hluta þáttar á grillinu eins og við höfum kosið kalla þennan dagskrárlið. Við spyrjum Höllu spjörunum úr og freistum þess kynnast henni betur.

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO telur akstur vegna farsímanotkunar einn stærsti áhættuþáttur umferðarslysa í heiminum.

Allt bendir til þess fólk sem notar síma við akstur fjórum sinnum líklegra til lenda í slysi. Þá er tuttugu og þrisvar sinnum líklegra fólk sem les og eða skrifar skilaboð meðan á akstri lendi í slysi. hefur Samgöngustofa í samvinnu við tryggingarfélagið Sjóvá ákveðið hrinda af stað herferð gegn farsímanotkun sem ber yfirskriftina "EKKI TAKA SKJÁÁHÆTTUNA" Það er hættulegt tala í síma undir stýri. Gunnar Geir Gunnarsson deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar Samgöngustofu kemur til okkar.

Íbúar í Ölfusi eru fara kjósa samhliða forsetakosninunum um hvort þeir vilji breyti á deiluskipulagi þannig mölunarverskmiðja Hedelberg geti risið í næsta nágrenni við Þorlákshöfn. Það er búið boða til íbúðarfundar í kvöld og hingað er komin Ása Berglind Hjálmarsdóttir bæjarfulltrúi í minnihluta bæjarstjórnar Ölfuss.

Þættir

,