Síðdegisútvarpið

19.október

Í gær 18.október var alþjóðlegur dagur breytingaskeiðsins og af því tilefni ætlum við beina sjónum okkar þessu tímabili sem allar konur ganga í gegnum. Breytingaskeiðið reynist sumum konum erfitt á meðan aðrar finna minna fyrir því en einkennin eru mjög breytileg frá konu til konu. Alþjóðlegu breytingaskeiðasamtökin IMS ákváðu yfirskrift gærdagsins skyldi vera hjarta og æðasjúkdómar og er það gert til vekja athygli og upplýsa almenning og heilbrigðisstarfsfólk um orsakir og áhrif hjarta og æðasjúkdóma á konur. Sonja Bergmann sérfræðingur hjá Gynamedica kemur til okkar á eftir og ræðir þessi mál við okkur en einnig ætlum við ræða við hana um hvaða áhrif breytingskeiðið hefur á sambönd og kynlíf

Fjóla Signý Hannesdóttir rófubóndi mætir til okkar beint af býli. Tilefnið er ærið því það styttist í hrekkjavökuna sem þjóðin hefur tekið fagnandi. Á þessum tíma árs sjást innflutt grasker í stórmörkuðum og seljast iðulega upp. Fjóla leggur til íslenska rófan taki við því hún er ekkert ein um það skera út hrekkjavöku rófu. Meira um það á eftir.

Sigurjón Sighvatsson situr aldrei auðum höndum og ætlar hann kíkja til okkar á eftir og segja okkur frá nýjasta hugarfóstri sínu sem er ferðaþjónusta byggð á sýndarveruleika upplifun.

Ef hlustendur voru ekki búin átta sig á því þá er fimmtudagur, það þýðir Atli Fannar Bjarkason mætir með meme-ið sitt. Við erum tala um meme vikunnar.

Ragnhildur Sverrisdóttir, Hildur Heimisdóttir og Selma Kristín Erlendsdóttir í Ukulellum, hljómsveit skipuðum hinsegin konum koma til okkar á eftir. Ukulellurnar eru fara halda tónleika í lok mánaðarins og þær ætla segja okkur betur frá því og svo mörgu öðru.

Í morgun bárust fréttir af því tugir lögreglumanna hefði særst í Berlín í nótt eftir hafa verið kallaðir út á samstöðufund með Palestínumönnum þar sem loftárásum Ísraels á Gasa var mótmælt. Á línunni hjá okkur er Davíð Magnússon en hann hefur verið búsettur í Berlín um árabili.

Frumflutt

19. okt. 2023

Aðgengilegt til

18. okt. 2024
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þegar fyrsta hluta úthlutunar leikskólaplássa í Reykjavík lauk föstudaginn 10. maí höfðu foreldrar rúmlega 1700 barna fengið boð og þegið vistun í borgarrekna leikskóla.

Hildur Lilja Jónsdóttir, fagstjóri leikskóla í Austurmiðstöð sem einnig er í innritunarteymi skóla- og frístundasviðs kemur til okkar á eftir og fer yfir stöðuna í þessum málaflokki með okkur.

Halla Hrund Logadóttir forsetaframbjóðandi verður síðan hjá okkur í seinni hluta þáttar á grillinu eins og við höfum kosið kalla þennan dagskrárlið. Við spyrjum Höllu spjörunum úr og freistum þess kynnast henni betur.

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO telur akstur vegna farsímanotkunar einn stærsti áhættuþáttur umferðarslysa í heiminum.

Allt bendir til þess fólk sem notar síma við akstur fjórum sinnum líklegra til lenda í slysi. Þá er tuttugu og þrisvar sinnum líklegra fólk sem les og eða skrifar skilaboð meðan á akstri lendi í slysi. hefur Samgöngustofa í samvinnu við tryggingarfélagið Sjóvá ákveðið hrinda af stað herferð gegn farsímanotkun sem ber yfirskriftina "EKKI TAKA SKJÁÁHÆTTUNA" Það er hættulegt tala í síma undir stýri. Gunnar Geir Gunnarsson deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar Samgöngustofu kemur til okkar.

Íbúar í Ölfusi eru fara kjósa samhliða forsetakosninunum um hvort þeir vilji breyti á deiluskipulagi þannig mölunarverskmiðja Hedelberg geti risið í næsta nágrenni við Þorlákshöfn. Það er búið boða til íbúðarfundar í kvöld og hingað er komin Ása Berglind Hjálmarsdóttir bæjarfulltrúi í minnihluta bæjarstjórnar Ölfuss.

Þættir

,