Síðdegisútvarpið

29.september

Vel á annan tug sprengju- eða skotárása hafa verið gerðar nærri Stokkhólmi í september og tengjast flestar átökum innan glæpagengisins Foxtrot og er yfirstandandi mánuður þegar orðinn mannskæðasti í fjögur ár þegar kemur átökum glæpagengja í landinu. Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, ávarpaði þjóð sína í gær og sagði stöðuna grafalvarlega,að gengjastríðið sem geisar án fordæma og viðlíka ástand hafi ekki sést annars staðar í Evrópu. En hvers vegna er staðan orðin svona í Svíðþjóð. Bjarni Pétur Jónsson fréttamaður hefur verið fylgjast með þessu máli og hann kemur til okkar á eftir.

Kvennafrídagurinn var fyrst haldinn á Íslandi þann 24. október 1975, til mótmæla margvíslegri mismunun gegn konum á vinnumarkaðnum og vekja athygli á framlagi kvenna til samfélagsins. Þessi atburður vakti heimsathygli og er búið gera um hann heimildarmynd sem verður forsýnd á sunnudag. Hrafnhildur Gunnarsdóttir kvikmyndargerðarmaður er ein þeirra sem þessari mynd standa hún kemur til okkar og segir frá.

Snorri Másson fjölmiðlamaður hefur stofnað fjölmiðilinn "Snorri Másson ritstjóri". Við eins og eflaust fleiri fögnum tilkomu nýrra fjölmiðla og ætlum við því Snorra til okkar hingað á eftir segja okkur betur frá því sem þarna verður á boðstólnum.

Og í kvöld snýr Gísli Marteinn aftur á skjáinn og tekur flugið á föstudagskvöldum í vetur, tekur á móti góðum gestur og fer með þeim yfir helstu atburði vikunnar í stjórnmálum, menningu og mannlífi. Berglind Festival verður með Gísla eins og undanfarin ár og þau koma til okkar í lok þáttar í smá upphitun.

Svo er það tenórinn Alexander Jarl Þorsteinsson sem uppgötvaði ástríðu sína fyrir óperu aðeins fimm ára aldri, þökk föðurafa hans sem gjarnan lét hann hlusta á helstu perlur óperuheimsins frá unga aldri. Ári síðar, þá rétt orðinn sex ára hóf hann söngnám. er hann á tónleikaferð um landið og við ætlum heyra í honum hér á eftir.

Afturelding og Vestri munu mætast í úrslitaleik um laust sæti í Bestu deild karla í fótbolta næsta laugardag og leikurinn fer fram á Laugardalsvelli. Samkæmt okkar upplýsingum hefur hvorugt liðið spilað i efstu deild áður. Óðinn Svan Óðinsson kemur til okkar á eftir og spáir í leikinn.

Nýr hópur norskra kafara sem sér­hæfa sig í snorkla eða rekkafa í ám í leit stroku­fiski er við köf­un í laxveiðiám í Húna­vatns­sýsl­um. Þeir byrjuðu í gær­morg­un með því kafa í Víðidalsá og eru störfum í Miðfjarðará. Rafn Valur Alfreðsson er leigutaki í Miðfjarðará og hann er á línunni.

Frumflutt

29. sept. 2023

Aðgengilegt til

28. sept. 2024
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þegar fyrsta hluta úthlutunar leikskólaplássa í Reykjavík lauk föstudaginn 10. maí höfðu foreldrar rúmlega 1700 barna fengið boð og þegið vistun í borgarrekna leikskóla.

Hildur Lilja Jónsdóttir, fagstjóri leikskóla í Austurmiðstöð sem einnig er í innritunarteymi skóla- og frístundasviðs kemur til okkar á eftir og fer yfir stöðuna í þessum málaflokki með okkur.

Halla Hrund Logadóttir forsetaframbjóðandi verður síðan hjá okkur í seinni hluta þáttar á grillinu eins og við höfum kosið kalla þennan dagskrárlið. Við spyrjum Höllu spjörunum úr og freistum þess kynnast henni betur.

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO telur akstur vegna farsímanotkunar einn stærsti áhættuþáttur umferðarslysa í heiminum.

Allt bendir til þess fólk sem notar síma við akstur fjórum sinnum líklegra til lenda í slysi. Þá er tuttugu og þrisvar sinnum líklegra fólk sem les og eða skrifar skilaboð meðan á akstri lendi í slysi. hefur Samgöngustofa í samvinnu við tryggingarfélagið Sjóvá ákveðið hrinda af stað herferð gegn farsímanotkun sem ber yfirskriftina "EKKI TAKA SKJÁÁHÆTTUNA" Það er hættulegt tala í síma undir stýri. Gunnar Geir Gunnarsson deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar Samgöngustofu kemur til okkar.

Íbúar í Ölfusi eru fara kjósa samhliða forsetakosninunum um hvort þeir vilji breyti á deiluskipulagi þannig mölunarverskmiðja Hedelberg geti risið í næsta nágrenni við Þorlákshöfn. Það er búið boða til íbúðarfundar í kvöld og hingað er komin Ása Berglind Hjálmarsdóttir bæjarfulltrúi í minnihluta bæjarstjórnar Ölfuss.

Þættir

,