Síðdegisútvarpið

Dýrtíð í skíðaskálum,frístundastyrkur ,ungbarnasund og Emmy verðlaunahafi

Meðal verðlaunahafa á Emmy-sjónvarpsverðlaununum í Hollywood í vikunni var brellufyrirtækið Stormborn studios sem hlaut verðlaun fyr­ir framúrsk­ar­andi tækni­brell­ur í sjón­varpi. Það hlaut stofan fyrir þættina Five Days at Memorial sem sýndir eru á Apple TV+ og einn liðsmanna teymisins er Íslendingurinn Sigurjón Friðrik Garðarsson. Við ætlum heyra í honum og forvitnast um verkefnið.

Við ætlum ræða frístundastyrk barna og ungmenna í þættinum á eftir en Bjarney Lárudóttir Bjarnadóttir sveitarstjórnarfulltrúi í Borgarbyggð skrifaði pistil sem birtist á vísi í dag með yfirskriftinni: Þegar jöfnunartæki snýst upp í andhverfu sína - um frístundastyrk sveitarfélaga. Þar talar Bjarney um það mikla gæjuspor sem stigið var þegar frístundastyrkur sveitarfélaga var tekinn upp á sínum tíma með það markmiði auka þátttöku barna og ungmenna í skipulögðu tómstundastarfi. Í ljós hefur þó komið stór hluti barna nýtir ekki styrkinn og telur Bjarney gera þurfi breytingar á reglum um úthlutun. Bjarney verður á línunni hjá okkur.

Mörgum brá í brún fyrir helgi þegar Snorri Magnússon birti færslu á fésbókarsíðu Ungbarnasunds Snorra loka þyrfti sundlauginni sem hýst hefur ungbarnasundið í áraraðir, til frambúðar. Fjöldi ungbarna bíði eftir komast aftur í sund eftir jólafrí og fjöldi barna á biðlista byrja á sundnámsskeiði. því verði ekki og ekkert plan b til. Við ætlum Snorra til okkar á eftir og ræða við hann um stöðuna og spyrja hann út í ungbarnasundið sem hann hefur starfrækt í yfir þrjátíu ár.

Við heyrðum af því 5,5 g tæknin ryðja sér til rúms hér á landi og okkur leikur forvitni á vita meira um þá tækni. Til hvers þurfum við hana og munum við finna einhvern mun á henni og þeirri tækni sem við notum núna. Hvernig stöndum við okkur í þróa og bæta fjarskiptakerfin samanborið við önnur lönd. Og á mannamáli skipta þessi g einhverju máli, altso 3 g, 4 g og 5 g fyrir almenna notendur. Ólafur Magnússon, framkvæmdastjóri tækni- og nýsköpunarsviðs Nova kemur til okkar á eftir og við spyrjum hann út í þetta.

Í upphafi nýs árs er gaman geta treyst á ýmsa ljúfa vorboða fylgjast með, stórmót í handbolta eru auðvitað vel þegin og mörg okkar bíða spennt eftir en svo fer líka bresta á með hinni árlegu og stórskemmtilegu Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskólanna. Fyrsta umferð hefst einmitt í kvöld og við tökum púlsinn á Kristni Óla Haraldssyni sem er nýr spyrill keppninnar og mörg okkar þekkja sem Króla og einum af dómurum og spurningahöfundum, Helgu Margréti Höskuldsdóttur.

Við hjuggum eftir færslu á samfélagsmiðlum frá Kristínu Tómasdóttur, fjölskyldumeðferðarfræðingi og rithöfundi þar sem hún gagnrýndi harðlega framboð á veitingum á skíðasvæðum norðan heiða og hér syðra, sem og verðlaginu og var henni afar heitt í hamsi. Kristín er komin á línuna hér í byrjun þáttar.

Frumflutt

8. jan. 2024

Aðgengilegt til

7. jan. 2025
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þegar fyrsta hluta úthlutunar leikskólaplássa í Reykjavík lauk föstudaginn 10. maí höfðu foreldrar rúmlega 1700 barna fengið boð og þegið vistun í borgarrekna leikskóla.

Hildur Lilja Jónsdóttir, fagstjóri leikskóla í Austurmiðstöð sem einnig er í innritunarteymi skóla- og frístundasviðs kemur til okkar á eftir og fer yfir stöðuna í þessum málaflokki með okkur.

Halla Hrund Logadóttir forsetaframbjóðandi verður síðan hjá okkur í seinni hluta þáttar á grillinu eins og við höfum kosið kalla þennan dagskrárlið. Við spyrjum Höllu spjörunum úr og freistum þess kynnast henni betur.

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO telur akstur vegna farsímanotkunar einn stærsti áhættuþáttur umferðarslysa í heiminum.

Allt bendir til þess fólk sem notar síma við akstur fjórum sinnum líklegra til lenda í slysi. Þá er tuttugu og þrisvar sinnum líklegra fólk sem les og eða skrifar skilaboð meðan á akstri lendi í slysi. hefur Samgöngustofa í samvinnu við tryggingarfélagið Sjóvá ákveðið hrinda af stað herferð gegn farsímanotkun sem ber yfirskriftina "EKKI TAKA SKJÁÁHÆTTUNA" Það er hættulegt tala í síma undir stýri. Gunnar Geir Gunnarsson deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar Samgöngustofu kemur til okkar.

Íbúar í Ölfusi eru fara kjósa samhliða forsetakosninunum um hvort þeir vilji breyti á deiluskipulagi þannig mölunarverskmiðja Hedelberg geti risið í næsta nágrenni við Þorlákshöfn. Það er búið boða til íbúðarfundar í kvöld og hingað er komin Ása Berglind Hjálmarsdóttir bæjarfulltrúi í minnihluta bæjarstjórnar Ölfuss.

Þættir

,