Síðdegisútvarpið

2.október

Við ætlum kynna okkur nýjustu vendingar í Bankastræti Club málinu en aðalmeðferð málsins hefur haldið áfram í dag í veislusalnum í Gullhömrum í Grafarholti. Saksóknari krefst þess maðurinn sem grunaður er um hafa stungið þrjá inni á skemmtistaðnum Bankastræti Club verði dæmdur til minnst átta ára fangelsisvistar. Haukur Hólm fréttamaður segir okkur frá gangi mála hér á eftir.

Gjaldskyldutími í bílastæði miðsvæðis í Reykjavík lengdist í gær 1.október og þarf borga meira á ákveðnum stöðum. Í fyrsta sinn þarf greiða í stæði á sunnudögum og til klukkan 9 á kvöldin. Verslunareigendur Kjötborgar er afar ósáttir við þessar breytingar og við ætlum heyra öðrum verslunareigandanum honum Gunnari Jónassyni hér á eftir.

Í dag kom inn á streymisveituna Storytel fyrsti þátturinn af heimildarþáttaröð sem ber yfirskriftina Réttarmorð. Þar fjallar Sigursteinn Másson ítarlega um Guðmundar og Geirfinnsmálið í sex þáttum sem verða síðan birtir vikulega á Storytel. Sigursteinn kemur til okkar á eftir og segir okkur betur frá.

Við ætlum heyra af námskeiði sem kallast Endurheimt eftir meðgöngu og fæðingu þar sem lögð er áhersla á uppbyggingu á líkama og sál með áherslu á sjálfsmildi. Þær koma til okkar Indíana Rós Ægisdóttir kynfræðingur og Elín Ásbjarnardóttir Strandberg jógakennari og segja frá.

Jakob Eggertsson barþjónn hefur undanfarna daga dvalið í Saó Paulo í Brasilíu en þar fór fram lokaviðureign í heimsmeistarakeppni barþjóna World Class og þar mætti Jakob bestu barþjónum heims. World Class keppnin snýst ekki um einn drykk heldur verða margar áskoranir þar sem dæmt er eftir mörgum þáttum.Það er skemmst frá því segja Jakobi gekk vel og er kominn í hóp 12 þeirra bestu og við hringjum í hann og heyrum í honum í þættinum.

Tvær sprengjur voru sprengdar í íbúðahverfum í og við Stokkhólm árla morguns. Enginn mun hafa slasast alvarlega í árásunum, sem báðar eru taldar tengjast yfirstandandi átökum í undirheimum Svíþjóðar, en miklar skemmdir urðu á húsum. Á línunni hjá okkur er Jóhann Ingi Sigurðsson en hann hefur verið búsettur í Stokkhólmi síðastliðin 13 ár.

Frumflutt

2. okt. 2023

Aðgengilegt til

1. okt. 2024
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þegar fyrsta hluta úthlutunar leikskólaplássa í Reykjavík lauk föstudaginn 10. maí höfðu foreldrar rúmlega 1700 barna fengið boð og þegið vistun í borgarrekna leikskóla.

Hildur Lilja Jónsdóttir, fagstjóri leikskóla í Austurmiðstöð sem einnig er í innritunarteymi skóla- og frístundasviðs kemur til okkar á eftir og fer yfir stöðuna í þessum málaflokki með okkur.

Halla Hrund Logadóttir forsetaframbjóðandi verður síðan hjá okkur í seinni hluta þáttar á grillinu eins og við höfum kosið kalla þennan dagskrárlið. Við spyrjum Höllu spjörunum úr og freistum þess kynnast henni betur.

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO telur akstur vegna farsímanotkunar einn stærsti áhættuþáttur umferðarslysa í heiminum.

Allt bendir til þess fólk sem notar síma við akstur fjórum sinnum líklegra til lenda í slysi. Þá er tuttugu og þrisvar sinnum líklegra fólk sem les og eða skrifar skilaboð meðan á akstri lendi í slysi. hefur Samgöngustofa í samvinnu við tryggingarfélagið Sjóvá ákveðið hrinda af stað herferð gegn farsímanotkun sem ber yfirskriftina "EKKI TAKA SKJÁÁHÆTTUNA" Það er hættulegt tala í síma undir stýri. Gunnar Geir Gunnarsson deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar Samgöngustofu kemur til okkar.

Íbúar í Ölfusi eru fara kjósa samhliða forsetakosninunum um hvort þeir vilji breyti á deiluskipulagi þannig mölunarverskmiðja Hedelberg geti risið í næsta nágrenni við Þorlákshöfn. Það er búið boða til íbúðarfundar í kvöld og hingað er komin Ása Berglind Hjálmarsdóttir bæjarfulltrúi í minnihluta bæjarstjórnar Ölfuss.

Þættir

,