Síðdegisútvarpið

Slöngubátasvindl, lóðabrask og átök Kúrda

Björgunarsveitin birti færslu í gær á Facebook þar sem þau héldu því fram fyrirtækið Sportbátar hefðu svikið sig um níu milljónir króna þegar þeir seldu þeim Zodiac bát sem aldrei skilaði sér. Við ræðum við Hafdísi Einarsdóttur formann Skagfirðingasveitarinnar, sem er björgunarsveit Skagafjarðar, um þennan meinta slöngubátasvindlara.

Sigurður Ingi Jóhannsson, innanríkisráðherra, lagði fram frumvarp gegn lóðabraski á dögunum. Frumvarpinu er ætlað gera sveitarfélögum kleift taka lóðir út úr samþykktu deili­skipu­lagi ef lóðar­hafi hef­ur ekki sótt um bygg­ing­ar­leyfi fimm árum eft­ir út­hlut­un lóðar­inn­ar. Sigurður Ingi kemur til okkar og útskýrir hverju hann vill fram með þessum breytingum.

Það brá eflaust einhverjum í brún í gær þegar fregnir bárust af því sjálfur konungur breska heimsveldisins, væri kominn með krabbamein. Við fáum til okkar fréttamanninn Önnu Lilju Þórisdóttur sem veit meira um bresku konungsfjölskylduna en hinn venjulegi maður.

Ögmundur Jónasson, fyrrverandi ráðherra, ferðaðist ásamt sendinefnd til Basúr, sjálfstjórnarsvæðis Kúrda innan Íraks, með það markmiði kynna sér aðstæður, kortleggja pólitíkina og tala fyrir því stuðningur fáist fyrir friðarviðræðum í Tyrklandi við Kúrda. Markmiðið er ansi göfugt, en Kúrdar hafa eldað grátt silfur við Tyrki í áratugi. Ögmundur kemur til okkar og lýsir þessu ferðalagi og hvort það yfirhöfuð raunhæft koma á friði á milli þessara aðila.

Í dag fór fram umræða í borgarstjórn Reykjavíkur um flugvallarstæði í Hvassahrauni. Sjálfstæðisflokkurinn setti fram tillögu þar sem hann óskaði eftir því fallið yrði frá áformum um flugvöll í Hvassahrauni og fallið yrði samhliða frá frekari fjárframlögum borgarinnar til rannsókna á Hvassahrauni sem mögulegu flugvallarstæði. Við ætlum heyra í Hildi Björnsdóttur oddvita Sjálfstæðisflokksins í borginni á eftir og spyrja hana nánar út í þessa tillögu.

Lagalisti:

Jón Jónsson Tónlistarm. - Spilaborg.

FIRST AID KIT - My Silver Lining.

Lizzo - About Damn Time.

GDRN - Ævilangt.

KACEY MUSGRAVES - Space Cowboy.

Celebs - I Love My Siblings.

Flott - Með þér líður mér vel.

NOAH AND THE WHALE - 5 Years Time.

Frumflutt

6. feb. 2024

Aðgengilegt til

5. feb. 2025
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þegar fyrsta hluta úthlutunar leikskólaplássa í Reykjavík lauk föstudaginn 10. maí höfðu foreldrar rúmlega 1700 barna fengið boð og þegið vistun í borgarrekna leikskóla.

Hildur Lilja Jónsdóttir, fagstjóri leikskóla í Austurmiðstöð sem einnig er í innritunarteymi skóla- og frístundasviðs kemur til okkar á eftir og fer yfir stöðuna í þessum málaflokki með okkur.

Halla Hrund Logadóttir forsetaframbjóðandi verður síðan hjá okkur í seinni hluta þáttar á grillinu eins og við höfum kosið kalla þennan dagskrárlið. Við spyrjum Höllu spjörunum úr og freistum þess kynnast henni betur.

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO telur akstur vegna farsímanotkunar einn stærsti áhættuþáttur umferðarslysa í heiminum.

Allt bendir til þess fólk sem notar síma við akstur fjórum sinnum líklegra til lenda í slysi. Þá er tuttugu og þrisvar sinnum líklegra fólk sem les og eða skrifar skilaboð meðan á akstri lendi í slysi. hefur Samgöngustofa í samvinnu við tryggingarfélagið Sjóvá ákveðið hrinda af stað herferð gegn farsímanotkun sem ber yfirskriftina "EKKI TAKA SKJÁÁHÆTTUNA" Það er hættulegt tala í síma undir stýri. Gunnar Geir Gunnarsson deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar Samgöngustofu kemur til okkar.

Íbúar í Ölfusi eru fara kjósa samhliða forsetakosninunum um hvort þeir vilji breyti á deiluskipulagi þannig mölunarverskmiðja Hedelberg geti risið í næsta nágrenni við Þorlákshöfn. Það er búið boða til íbúðarfundar í kvöld og hingað er komin Ása Berglind Hjálmarsdóttir bæjarfulltrúi í minnihluta bæjarstjórnar Ölfuss.

Þættir

,