Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið 15. nóvember

Síðdegisútvarpið heilsar á miðvikudegi og við stýrið sitja þau Guðrún Dís Emilsdóttir og Kristján Freyr Halldórsson

Í þættinum í gær fjölluðum við um það líkhúsið á Akureyri hefði verið auglýst til sölu eða leigu á Akureyri.net og í Morgunblaðinu og ræddum við við Smára Sigurðsson framkvæmdastjóra Kirkjugarða Akureyrar sem sagði enginn bæri ábyrgð á rekstri líkhúsa. Frá því heilbrigðiskerfið gefur út dánarvottorð og þar til kirkjugarður tekur við hinum látna er algjört gat í kerfinu, engum ber sjá um ferlið frá dánarvottorði til greftrunar. Ein þeirra sem bent hefur á það óefni sem þessi mál eru í hér á landi er Jódís Skúladóttir þingmaður VG og hún verður á línunni hjá okkur á eftir.

Gylfi Þór Þor­steins­son for­stöðumaður fjölda­hjálp­ar­stöðva hjá Rauða krossinum kemur til okkar á eftir og fer yfir stöðuna með okkur þegar tæpir fimm sólarhringar eru síðan Grindvíkingum var gert yfirgefa heimili sín.

Á morgun á blása til samstöðutónleika fyrir Palestínu þar sem fjöldi okkar fremsta listafólks kemur fram. Ástandið á Gaza fer versnandi með degi hverjum en her Ísraels réðst í morgun inn á Al-Shifa, stærsta sjúkrahús Gaza. Þar fyrir innan segja Ísraelsmenn Hamas starfræki einskonar höfuðstöðvar, sem samtökin harðneita. Nokkur þúsund manns voru inni á spítalanum þegar her Ísraels réðist þar inn. Við ætlum beina sjónum okkar palestínumönnum í þættinum og ræða samstöðutónleikana við þá Hjálmtý Heiðdal formann félagsins Ísland - Palestína og Kjartan Holm einn skipuleggjanda tónleikanna.

Fram kom í fjölmiðlum tónlistarmaðurinn Mugison hafi afþakkað útnefningu sem bæjarlistamaður Ísafjarðarbæjar og hafi Menningarmálanefnd bæjarins í kjölfarið lagt til við bæjarstjórn áætlaðir fjármunir vegna verðlaunafjár yrðu nýttir til jólaskreytinga í sveitarfélaginu, í stað þess falla niður. Við ræðum Pétur Óla Þorvaldsson sem situr í Menningarmálanefnd bæjarins.

Á laugardaginn var singles day í lok mánaðar er svartur föstudagur og þar á eftir rafrænn mánudagur og því finnst okkur við hæfi taka umræðu um þessa stóru tilboðsdaga og hversu skynsamlegt það er fyrir neytendur nýta sér öll þau tilboð sem eru auglýst. Er fólk meðvitað um það hvort það gera góð kaup á þessum dögum eða ekki og vantar fólk allt þetta dót eða er það knúið áfram af markaðsöflum. Við ætlum ræða þessa hluti við Dagbjörtu Jónsdóttur hjá Fundið fé.

En eins og alltaf á miðvikudögum þá byrjum við á Birni Malmquist, fréttamanni í Brussel.

Frumflutt

15. nóv. 2023

Aðgengilegt til

14. nóv. 2024
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þegar fyrsta hluta úthlutunar leikskólaplássa í Reykjavík lauk föstudaginn 10. maí höfðu foreldrar rúmlega 1700 barna fengið boð og þegið vistun í borgarrekna leikskóla.

Hildur Lilja Jónsdóttir, fagstjóri leikskóla í Austurmiðstöð sem einnig er í innritunarteymi skóla- og frístundasviðs kemur til okkar á eftir og fer yfir stöðuna í þessum málaflokki með okkur.

Halla Hrund Logadóttir forsetaframbjóðandi verður síðan hjá okkur í seinni hluta þáttar á grillinu eins og við höfum kosið kalla þennan dagskrárlið. Við spyrjum Höllu spjörunum úr og freistum þess kynnast henni betur.

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO telur akstur vegna farsímanotkunar einn stærsti áhættuþáttur umferðarslysa í heiminum.

Allt bendir til þess fólk sem notar síma við akstur fjórum sinnum líklegra til lenda í slysi. Þá er tuttugu og þrisvar sinnum líklegra fólk sem les og eða skrifar skilaboð meðan á akstri lendi í slysi. hefur Samgöngustofa í samvinnu við tryggingarfélagið Sjóvá ákveðið hrinda af stað herferð gegn farsímanotkun sem ber yfirskriftina "EKKI TAKA SKJÁÁHÆTTUNA" Það er hættulegt tala í síma undir stýri. Gunnar Geir Gunnarsson deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar Samgöngustofu kemur til okkar.

Íbúar í Ölfusi eru fara kjósa samhliða forsetakosninunum um hvort þeir vilji breyti á deiluskipulagi þannig mölunarverskmiðja Hedelberg geti risið í næsta nágrenni við Þorlákshöfn. Það er búið boða til íbúðarfundar í kvöld og hingað er komin Ása Berglind Hjálmarsdóttir bæjarfulltrúi í minnihluta bæjarstjórnar Ölfuss.

Þættir

,