Heimskreppa, einkunnir grunnskólanema og vöktun Landhelgisgæslu
Árásarstríð Bandaríkjamanna og Ísraela við Íran hefur skilað helstu olíurisum heimsins sem svarar 90 milljörðum króna aukahagnaði á degi hverjum frá því að það hófst, um 2.700 milljörðum á mánuði. Ástæðan er mikil hækkun á heimsmarkaðsverði olíu vegna lokunar Hormússunds og óvissu í olíuframleiðslu og -flutningum, Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn varar við alheimskreppu að óbreyttu, það er, ef ekki tekst að binda enda á stríðið hið snarasta. Ævar Örn Jósepsson segir frá.
Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra fór vítt og breitt þegar hún ávarpaði þing Kennarasambands Íslands í gær. Mesta athygli hafa ummæli hennar um einkunnagjöf vakið. Foreldrar hefðu meðal annars bent á að erfitt væri að geta ekki farið yfir próf barna sinna til að átta sig á stöðu þeirra og vildu meira gagnsæi. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir þetta við Þórunni Sif Böðvarsdóttur kennara.
Ógnir sem Landhelgisgæsla Íslands þarf að bregðast við eru orðnar fjölbreyttari og flóknari en áður. Þar vega þungt GPS-truflanir, tilraunir skipa til að senda rangar staðsetningarupplýsingar og aukin umferð svokallaðs skuggaflota nærri íslenskri lögsögu. Heimsmyndin er breytt og ógnirnar aðrar, segir Auðunn Kristinsson í viðtali við Ingólf Bjarna Sigfússon,
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Mark Eldred
Birt
16. apríl 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Spegillinn
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.