• 00:00:20Norrænt varnarsamstarf - Jónas Allansson
  • 00:06:38Deilt um Uppbyggingarsjóð EES
  • 00:11:40Þúsund manna verkefni

Spegillinn

Norrænt varnarsamstarf, ágreiningur um uppbyggingarsjóð EES-ríkja og Hastings í Gufunesi

Er þörf á norrænu varnarsamstarfi þegar þau eru öll í NATO? Jónas Allansson, skrifstofustjóri á varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins segir Atlantshafsbandalagsaðild allra styrki bæði bandalagið og Norðurlöndin sjálf með þéttri samvinnu og samruna á sviði hermála, líkt og þegar á félagslega og pólitíska sviðinu.

Samingur um Uppbyggingarsjóð EES ríkjanna, Íslands, Noregs og Lichtenstein er enn til umfjöllunar í Ráðherraráði Evrópusambandsins, tæpum fimm mánuðum eftir framkvæmdastjórn sambandsins staðfesti hann. Ekki virðist vera eining um innihald samningsins í vinnuhópi ráðherraráðsins sem fjallar um málið og óljóst hvenær hann verður endanlega staðfestur

Í kvikmyndaveri RVK Studios í Gufunesi er verið taka upp sjónvarpsþættina King and Conquerer sem gerðir eru fyrir BBC í Bretlandi og CBS í Bandaríkjunum, nærri þúsund manns koma þáttagerðinni með einum eða öðrum hætti. Spegillinn slóst í för með Baltasar Kormáki, ræddi við hann um stærð íslenska hestsins og af hverju það margborgar sig fyrir stjórnvöld setja í sjónvarps-og kvikmyndaframleiðslu.

Frumflutt

29. apríl 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,