Spegillinn

Spegillinn 4.10.23 Loðnubrestur, fiskeldi, Svíþjóð, Súdan og sveitin

Hafrannsóknastofnun leggur til engar loðnuveiðar verði leyfðar á næsta fiskveiðiári. Framkvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar segir fréttirnar ekki koma á óvart.

Villti laxastofninn á njóta vafans gagnvart eldislöxum samkvæmt drögum stefnu um lagareldi. Heimildir til sjókvíaeldis gætu orðið engu, hafi reglulegt strok úr kvíum mikil áhrif á villta laxinn.

Matvælaráðherra segir stefnt á hækka auðlindagjöld í sjókvíaeldi nær því sem tíðkast í nágrannalöndunum Noregi og Færeyjum.

Formaður tollvarðafélags Svíþjóðar segir glæpaölduna í landinu ekki koma á óvart enda flæði fíkniefni inn í landið vegna niðurskurðar í landamæraeftirliti.

Ung kona í breska hernum svipti sig lífi vegna linnulausar kynferðislegrar áreitni frá yfirmanni sínum.

----

Stefnumótun fyrir umgjörð og uppbyggingu lagareldis á og við Ísland til ársins 2040 var kynnt í morgun og sett inn í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar. Fjallað er um allt í senn landeldi, sjókvíaeldi, úthafseldi og þörungarækt en vanda er það sjókvíaeldið sem fangar athyglina, enda ýmislegt þar sem betur fara, samkvæmt nýlegum úttektum þar á.

Fólki sem flýr frá Súdan yfir landamærin til Suður-Súdans fjölgar stöðugt. Borgarastríð hefur geisað í landinu frá því um miðjan apríl, kostað á áttunda þúsund lífið og hrakið yfir fimm milljónir á flótta, þar af tvær komma átta milljónir íbúa höfuðborgarinnar Khartoum.

Eitt af hverjum tíu börnum sem send voru í sveit á árum áður varð fyrir eða varð vitni ofbeldi meðan á dvöl stóð. Prófessor við Háskóla Íslands segir erfiðisvinnu, afskiptaleysi og líkamlegar refsingar meðal þess sem þessum hópi minnisstætt.

Frumflutt

4. okt. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,