Spegillinn

Mótmælt í möstrum hvalveiðibáta, líðan ungmenna, byggðakvóti

Enn er mótmælt í möstrum hvalveiðibáta við Reykjavíkurhöfn. Lögmaður reyndi síðdegis koma mat og drykk til mótmælenda.

Karlmaður hlaut í dag einn þyngsta dóm sem kveðinn hefur verið upp í heimilisofbeldismáli. Hann var dæmdur í átta ára fangelsisvist í héraðsdómi Reykjaness.

Börn með erlendan bakgrunn eru miklu líklegri til vera lögð í einelti en börn af íslenskum uppruna.

Rússlandsforseti segir rússneskt korn á leið til sex Afríkuríkja á næstu vikum. Kornútflutningur um Svartahaf hefur legið niðri frá því samkomulag rann út í júlí.

Héraðssaksóknari hefur hafið rannsókn á meintu mútubroti í sveitarfélaginu Árborg.

***

Um 10-20% barna glímir við alls kyns vanda, vanlíðan, hafa orðið fyrir áfalli eða búa við erfiðar aðstæður. Þetta eru í grófum dráttum niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar sem kynnt var í dag. Rætt var við Ragnýju Þóru Guðjohnsen lektor á menntavísindasviði Háskóla Íslands. Hún er faglegur stjórnandi íslensku æskulýðsrannsóknarinnar.

Hluti af áratugalöngum deilum um sjávarútveg og stjórn fiskveiða hefur snúist um ráðstafanir sem er ætlað efla sjávarþorp. Í nýlegri skýrslu um Auðlindina okkar sem starfshópur matvælaráðherra kynnti í síðustu viku er vísað til þess byggðakerfin, eða 5,3% leiðin, hafi verið bitbein í samfélagslegri umræðu um sjávarútveg og á Alþingi. Á ári hverju hleypur verðmæti aflaheimilida sem settar eru í í þessar ráðstafanir á milljörðum. Segir í skýrslunni það talið um fimm og hálfur til sjö og hálfur milljarður á fiskveiðiárinu 2019 til 20. Erfitt hefur verið meta árangurinn, markmiðin ekki vel skilgreind og áhrifin á byggðafestu frekar rýr. Meðal annars er lagt til gerð verði tilraun og hluti af almenna byggðakvótanum, sem hvað mest ósætti hefur verið um, verði leigður út, afraksturinn renni beint til sveitarfélaga og línuívilnun verði aflögð. Ráðherra hefur boðað lagasetningu um sjávarútveg á komandi þingi. Rætt var við Þórodd Bjarnason, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands.

Umsjónarmaður Spegilsins var Ragnhildur Thorlacius. Tæknimaður var Jón Þór Helgason. Fréttaútsendingu stjórnaði Annalísa Hermannsdóttir.

Frumflutt

4. sept. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,