Bílar - ekki síst fólksbílar - hafa farið sístækkandi á alla kanta síðustu ár og áratugi, á sama tíma og bílunum fer fjölgandi - en meðalfjölskyldan minnkandi.
Ný rannsókn á vegum regnhlífarsamtakanna Transport & Environment, sem beita sér fyrir umhverfis- og loftslagsvænni samgöngum, leiðir í ljós að frá aldamótum hafa fólksbílar - að meðaltali - lengst um 1,2 sentimetra á ári og hvorutveggja breikkað og hækkað um hálfan sentimetra á ári. Þetta þýðir að á fyrsta fjórðungi aldarinnar hafa þeir lengst um 30 sentimetra og hækkað og breikkað um 12 - 13 sentimetra - að meðaltali. Áhrif þessarar þróunar eru margvísleg og ekki endilega af hinu góða. Ævar Örn ræðir við Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóra Bílgreinasambandsins.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Kári Guðmundsson
Birt
15. júlí 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Spegillinn
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.