Spegillinn

Minkar á Íslandi - lausir og villtir

Hundruðum og jafnvel þúsundum minka var sleppt úr búrum sínum á síðasta minkabúi landsins, Dalsbúi í Mosfellsdal, á miðvikudag og einhver hundruð hið minnsta sluppu út úr húsi. Svo virðist sem fæstir þeirra hafi komist út fyrir öryggisgirðingu sem umlykur búið, en fregnir hafa þó borist af dýrum utan hennar.

Eldisminkar eru um margt frábrugðnir villtu minkunum, sem þó eru allir afkomendur fyrri eldisminka. En hver er munurinn og hvað þarf fólk hafa í huga, gangi það fram á mink á kvöldrölti sínu? Spegillinn bar það undir Róbert Arnar Stefánsson, forstöðumann Náttúrustofu Vesturlands og sérfræðing í minkum, atferli þeirra og afkomu.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Birt

29. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,